Íslenski boltinn

Forná flautar á Fylkisvelli

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dagfinn Forná (annar frá hægri) dæmir á Fylkisvelli í kvöld.
Dagfinn Forná (annar frá hægri) dæmir á Fylkisvelli í kvöld. Mynd/fsf.fo
Dagfinn Forná, færeyskur dómari, mun dæma leik Fylkis og Víkings R. í Pepsi-deild karla í kvöld.

Forná dæmdi einnig leik ÍR og Gróttu í 2. deildinni á föstudaginn, en leiknum lyktaði með 1-0 sigri Seltirninga.

Þetta er liður í dómaraskiptum Íslands og Færeyja, en þetta er annað árið sem það samstarf stendur yfir. Norræn dómaraskipti hafa einnig átt sér stað í nokkurn tíma.

Forná til halds og trausts í kvöld verða aðstoðardómararnir Sigurður Óli Þórleifsson og Andri Vigfússon og eftirlitsmaðurinn Jón Sigurjónsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×