Íslenski boltinn

Jóhannes Karl: Alvöru fótboltaleikur fyrir alvöru karlmenn

Ólafur Haukur Tómasson á Þórsvelli skrifar
Jóhannes Karl Guðjónsson.
Jóhannes Karl Guðjónsson. Vísir/Vilhelm
Jóhannes Karl Guðjónsson og félagar hans í Fram fögnuðu mikilvægum 2-0 sigri á Þór á Þórsvelli í kvöld og enduðu þar með fimm leikja taphrinu félagsins. Jóhannes Karl var líka sáttur í leikslok. Fram komst fyrir vikið upp fyrir Þórsara sem sitja nú í botnsæti deildarinnar.

„Þetta var mikill léttir! Þetta hefur verið svolítið erfitt hjá okkur en við höfum verið að vinna mikið í okkar leikskipulagi og við spiluðum bara öflugan varnarleik í dag og sköpuðum okkur færi fram á við. Það var frábært að sjá Guðmund Stein skora tvö mörk í dag. Þetta var frábær sigur og mikill léttir,” sagði Jóhannes Karl Guðjónsson sáttur eftir leikinn í kvöld.

Það er ekki galið að segja að heimamenn í Þór hafi haft stjórn á leiknum lengst af og virkað með meiri yfirhönd en Framararnir. Framararnir héldu velli og komust yfir í leiknum en þeir þurftu að hafa fyrir því. Jóhannes Karl var mjög ánægður með frammistöðu sinna manna í dag, bæði hugarfarslega og leikskipulagslega.

„Við vissum að þetta er rosalega erfiður völlur að koma að spila á. Þeir mæta öskugrimmir í hvern leik og eru með sterkt og öflugt lið. Við vissum að við þyrftum að mæta í baráttuna í dag en við náðum að spila góðan leik og skora tvö mörk. Þeir voru meira með boltann en við vorum þéttir varnarlega. Við lögðum það upp í dag að fá ekki á okkur mark og vera þéttir til baka og við vitum að við erum með menn í liðinu sem geta skorað mörk eins og Guðmundur Steinn sýndi í dag. Við vorum með leikskipulag sem gekk upp í dag. Fyrir þennan leik vorum við að fá á okkur alltof mörg mörk og við ætluðum að passa það í þessum leik og það verður engin breyting á því í framhaldinu,” sagði Jóhannes.

Það sauð mikið upp úr í leiknum og mikill hiti myndaðist í kjölfar þess að Tryggvi Sveinn og Chuckwudi Chijindu voru reknir út af velli fyrir slagsmál. Jóhannes Karl sagði að svona væri þetta bara stundum og dómarinn hafði staðið sig mjög vel.

„Þetta var alvöru fótboltaleikur fyrir alvöru karlmenn. Þetta var hörkuleikur en mér fannst dómarinn standa sig vel í erfiðum aðstæðum. Svona er fótboltinn, stundum er meiri barátta en í öðrum leikjum og dómarinn stóð sig vel,” sagði Jóhannes Karl.


Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: Þór - Fram 0-2 | Guðmundur Steinn með tvö

Framarar enduðu fimm leikja taphrinu sína í Pepsi-deild karla í kvöld með því að sækja þrjú stig norður eftir 2-0 sigur á Þórsurum í 14. umferð deildarinnar. Guðmundur Steinn Hafsteinsson skoraði bæði mörk leiksins á síðustu sextán mínútunum en bæði lið enduðu með tíu menn inn á vellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×