Íslenski boltinn

Leiknir fær liðsstyrk

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Andri Fannar í baráttunni við Ian Jeffs, leikmann ÍBV.
Andri Fannar í baráttunni við Ian Jeffs, leikmann ÍBV. Vísir/Daníel
Leiknir R. hefur fengið góðan liðsstyrk í toppbaráttunni í 1. deild, en miðjumaðurinn Andri Fannar Stefánsson hefur verið lánaður til liðsins frá Val út tímabilið. Fótbolti.net greinir frá þessu.

Andri, sem er uppalinn hjá KA á Akureyri, hefur aðeins komið við sögu í tveimur deildarleikjum í sumar. Hann gekk til liðs við Val árið 2011 og hefur alls leikið 54 leiki fyrir Hlíðarendaliðið í deild og bikar.

Leiknismenn eru í góðri stöðu í 1. deildinni, en liðið situr sem stendur í toppsæti deildarinnar með 27 stig, þremur stigum meira en ÍA og á leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×