Sport

Eyjólfur tilkynnir U-21 liðið

Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 árs landsliðs karla í knattspyrnu, hefur valið átján manna hóp fyrir leikina tvo gegn Ungverjum og Maltverjum í undankeppni Evrópumótsins. Fyrri leikurinn verður gegn Ungverjum föstudaginn þriðja júní á Víkingsvelli og sá seinni gegn Möltu fjórum dögum síðar á KR-velli. Markverðir: Bjarni Þórður Halldórsson (Fylkir) Magnús Þormar (Keflavík) Aðrir leikmenn: Hannes Þorsteinn Sigurðsson (Viking FK) Viktor Bjarki Arnarsson (Fylkir) Ólafur Ingi Skúlason (Arsenal FC) Sigmundur Kristjánsson (KR) Davíð Þór Viðarsson (FH) Emil Hallfreðsson (Tottenham Hotspur) Sölvi Geir Ottesen Jónsson (Djurgårdens IF) Hörður Sveinsson (Keflavík) Steinþór Gíslason (Valur) Tryggvi Sveinn Bjarnason (KR) Jónas Guðni Sævarsson (Keflavík) Gunnar Þór Gunnarsson (Fram) Pálmi Rafn Pálmason (KA) Hjálmar Þórarinsson (Hearts) Kristján Hauksson (Fram) Ragnar Sigurðsson (Fylkir)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×