Körfubolti
186 187 188 189 190 191 192 193 194 … 217 ›
Loksins sigur hjá New York Sex leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Lærisveinar Larry Brown í New York unnu sinn fyrsta leik í deildarkeppninni þegar þeir skelltu Sacramento Kings á útivelli, en Toronto Raptors er enn án sigurs. Sport 14.11.2005 12:58
Detroit með 5. sigurinn í röð Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í gærkvöldi og þar bar hæst að Detroit Pistons skelltu Phoenix Suns á útivelli 111-104 í frábærum leik sem sýndur var í beinni útsendingu á NBATV í nótt. Miami vann nauman útisigur á Houston 88-84 og Atlanta tapaði 5. leiknum í röð, nú gegn LA Clippers 102-95. Sport 11.11.2005 13:37
Phoenix - Detroit í beinni útsendingu Það verður sannkallaður stórleikur í beinni á NBA TV í nótt, þar sem Steve Nash og félagar í Phoenix Suns taka á móti Austurdeildarmeisturum Detroit Pistons. Phoenix hefur gengið betur án Amare Stoudemire en menn þorðu að vona, en Detroit er á mikilli siglingu og er eina taplausa liðið í NBA. Sport 10.11.2005 18:49
Nowitzki meiddist og Dallas tapaði Tólf leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Philadelphia sigraði Dallas auðveldlega 112-97 eftir að Dallas var án Dirk Nowitzki lengst af í leiknum, en hann meiddist í baki. Keith Van Horn skoraði 19 stig og hirti 13 fráköst fyrir Dallas, en Allen Iverson skoraði 25 stig fyrir Philadelphia. Sport 10.11.2005 12:15
Philadelphia - Dallas í beinni Leikur Philadelphia 76ers og Dallas Mavericks verður í beinni útsendingu á NBA TV körfuboltastöðinni á Digital Ísland í kvöld. Þarna eru á ferðinni tvö skemmtileg lið, sem hafa á að skipa tveimur af betri leikmönnum heimsins, þeim Allen Iverson og Dirk Nowitzki. Sport 9.11.2005 14:17
Sacramento fékk grínið borgað Skondin uppákoma varð fyrir leik Sacramento og Detroit í NBA í nótt. Í upphitun fyrir leik liðanna eru venjulega spiluð myndbrot á risaskjá fyrir ofan völlinn og þegar lið Detroit var kynnt, hafði einhverjum háðfuglinum dottið í hug að sýna myndir af brenndum bílum og ónýtum byggingum, til að gera grín af staðalmyndum um bílaborgina. Þetta fór ekki vel fyrir brjóstið á leikmönnum Detroit. Sport 9.11.2005 13:09
Detroit enn taplaust Detroit Pistons heldur áfram sigurgöngu sinni í upphafi leiktíðar í NBA og í gær rúllaði liðið yfir Sacramento á útivelli 102-88. Milwaukee Bucks tapaði sínum fyrsta leik, en Los Angeles Lakers byrjar ágætlega. Sport 9.11.2005 11:21
Memphis-Seattle í beinni Einn leikur verður í beinni útsendingu á NBA TV í nótt, en það er viðureign Memphis Grizzlies og Seattle Supersonics. Memphis hefur unnið tvo leiki og tapað einum, en Seattle hefur spilað tvo leiki og unnið annan þeirra. Pau Gasol er stigahæstur í liði Memphis með rúm 25 stig að meðaltali í leik, en Ray Allen hefur skorað rúmt 31 stig í leik fyrir Seattle. Leikurinn hefst klukkan eitt í nótt. Sport 8.11.2005 22:00
San Antonio þurfti framlengingu í Chicago Fimm leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Meistarar San Antonio lögðu Chicago 104-95 í framlengdum leik og LA Clippers tapaði sínum fyrsta leik í vetur. Þá er Toronto enn án sigurs. Sport 8.11.2005 12:42
Enn tapar New York Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Lærisveinar Larry Brown í New York eru enn án sigurs og töpuðu öðrum leik sínum í röð á heimavelli í nótt fyrir Golden State Warriors. Sacramento náði sínum fyrsta sigri gegn Phoenix og LA Lakers lögðu Denver öðru sinni á nokkrum dögum. Sport 7.11.2005 13:08
Milwaukee lagði Miami Milwaukee Bucks hefur byrjað vel í NBA deildinni í vetur og í nótt vann liðið þriðja leik sinn í röð þegar það skellti Miami á heimavelli sínum 105-100. Michael Redd og Bobby Simmons skoruðu báðir 23 stig fyrir Milwaukee og T.J. Ford 13 stigum og 11 stoðsendingum. Dwayne Wade var atkvæðamestur í liði Miami með 21 stig, 9 stoðsendingar og 7 fráköst. Ellefu aðrir leikir voru á dagskrá í nótt. Sport 6.11.2005 15:13
Philadelphia bíður erfitt verkefni Lið Philadelphia 76ers hefur enn ekki unnið leik í deildarkeppni NBA það sem af er tímabili, en í kvöld sækir liðið Indiana heim í leik sem verður annar tveggja í beinni útsendingu á NBATV. Hinn leikurinn er viðureign LA Clippers og Minnesota Timberwolves. Sport 5.11.2005 21:32
Hamilton tryggði Detroit sigur í lokin Tíu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í gærkvöldi og þar bar hæst sigurkarfa Rip Hamilton á lokasekúndunni gegn Boston í æsispennandi leik sem sýndur var beint á NBA TV á Digital Ísland. Sport 5.11.2005 18:27
Tveir leikir í beinni Það verða tveir leikir í beinni útsendingu á NBA TV stöðinni á Digital Ísland í nótt. Fyrri leikurinn er viðureign Detroit Pistons og Boston Celtics, en síðari leikurinn er rimma Golden State Warriors og Utah Jazz. en þar eru á ferðinni lið sem ekki hafa sést mikið á skjánum hérlendis. Veislan byrjar fljótlega upp úr miðnætti. Sport 4.11.2005 23:45
O´Neal verður frá í 2-4 vikur Shaquille O´Neal verður frá keppni í tvær til fjórar vikur með Miami Heat, eftir að hafa snúið sig illa á ökkla í leiknum við Indiana síðustu nótt. Þetta staðfestu læknar liðsins í dag. O´Neal hafði byrjað tímabilið nokkuð rólega og var aðeins með 15 stig og 6 fráköst að meðaltali í fyrstu tveimur leikjunum. Sport 4.11.2005 20:35
Hann er "úr hverfinu" Vandræðagemlingurinn Ron Artest hjá Indiana Pacers hitti David Stern, framkvæmdastjóra NBA deildarinnar að máli fyrir leik Indiana og Miami í nótt og ekki var annað að sjá en að vel færi á með þeim. Stern dæmdi Artest sem kunnugt er í 73 leikja bann í fyrra fyrir slagsmál. Sport 4.11.2005 17:07
Stórleikur Bryant dugði ekki gegn Suns Phoenix Suns lagði Los Angeles Lakers á útivelli í síðari leik kvöldsins í NBA í nótt 122-112. Phoenix hafði yfirburði í leiknum í gærkvöld, en liðið var þó næstum búið að glutra niður 17 stiga forystu í fjórða leikhluta eins og tveimur kvöldum áður gegn Dallas. Sport 4.11.2005 16:36
Númer Miller hengt upp í mars Reggie Miller fær treyju sína hengda upp í rjáfur á heimavelli Indiana Pacers þann 31. mars næstkomandi í virðingarskyni fyrir farsælan feril hans, en Miller lék öll átján ár sín í deildinni með félaginu. Sport 4.11.2005 16:50
Indiana vann í Miami Lið Indiana Pacers minnir rækilega á sig í upphafi leiktíðar í NBA og í nótt vann það góðan 105-102 útisigur á Miami Heat. Jermaine O'Neal skoraði 27 stig og hirti 9 fráköst fyrir Indiana, en nafni hans Shaquille O´Neal þurfti að fara meiddur af leikvelli í síðari hálfleiknum með snúinn ökkla og missir væntanlega af næsta leik Miami. Sport 4.11.2005 04:59
Flautukarfa Bryant tryggði Lakers sigur Fjórtán leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Kobe Bryant tryggði Los Angeles Lakers sinn fyrsta sigur á tímabilinu með flautukörfu í framlengingu gegn Denver og LeBron James fór mikinn hjá Cleveland gegn New Orleans Hornets. Þá átti Michael Redd stórleik þegar Milwaukee vann annan sigurinn í röð á tveimur dögum. Sport 3.11.2005 15:52
Rafmögnuð spenna í opnunarleikjunum Leiktíðin í NBA deildinni hófst í nótt með fjórum leikjum og ekki er hægt að segja annað en að byrjunin lofi góðu, því tveir leikjanna fóru í framlengingu og mjög óvænt úrslit urðu í fyrsta leiknum sem háður var í Oklahoma City. Sport 2.11.2005 07:00
Dunleavy samdi við Golden State Framherjinn ungi Mike Dunleavy hjá Golden State Warriors, framlengdi í gær samning sinn við félagið um fimm ár og fær fyrir það um 44 milljónir dollara. Dunleavy var valinn þriðji í nýliðavalinu árið 2002 og fetaði með samningnum í fótspor Tayshaun Prince sem undirritaði svipaðan samning við Detroit skömmu áður. Sport 1.11.2005 04:50
Prince semur við Detroit Framherjinn Tayshaun Prince hefur framlengt samning sinn við Detroit Pistons til fimm ára og fær fyrir það um 47 milljónir dollara í laun. Samningar milli umboðsmanns Prince og félagsins náðust á elleftu stundu, en ef það hefði ekki tekist, hefði Prince verði með lausa samninga næsta sumar. Sport 31.10.2005 18:01
Magloire til Milwaukee Bucks Milwaukee Bucks var duglegt á leikmannamarkaði NBA í sumar og fékk meðal annars fyrsta valréttinn í nýliðavalinu. Í gærkvöldi nældi félagið svo í enn einn leikmanninn þegar það fékk til sín miðherjann Jamaal Magloire frá New Orleans, í skiptum fyrir framherjann Desmond Mason og valrétt í nýliðavalinu á næsta ári. Sport 27.10.2005 04:15
Flautukarfa Payton tryggði Miami sigur Fjórir æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt og þar bar hæst að Gary Payton tryggði Miami Heat eins stigs sigur á Atlanta Hawks með körfu á síðustu sekúndu leiksins. Sport 25.10.2005 05:47
Þrír leikir í kvennakörfunni Þrír leikir voru á dagskrá í 1. deild kvenna í körfuknattleik í dag. Keflavíkurstúlkur héldu uppteknum hætti og völtuðu yfir Breiðablik 106-50 á útivelli. Haukar sigruðu KR 82-34 og Grindavíkurstúlkur lögðu ÍS í hörkuleik í Grindavík, 75-67. Keflavík og Grindavík eru því bæði með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. Sport 23.10.2005 17:51
Auðvelt hjá Njarðvík og Fjölni Njarðvíkingar unnu sannfærandi sigur á Hetti í Hópbílabikarnum í körfubolta á Egilsstöðum í gærkvöldi 107-77 og Fjölnir gerði góða ferð á Ísafjörð og lagði KFÍ 90-61. Sport 23.10.2005 17:51
Sex æfingaleikir í NBA í nótt Sex æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt og þar á meðal var leikur LA Lakers og Denver Nuggets, sem sýndur var beint á NBA TV á Digital Ísland. Leikurinn var hin besta skemmtun, en það voru gestirnir frá Denver sem voru sterkari og sigruðu 105-94. Þá háðu Allen Iverson og LeBron James mikið einvígi í nótt. Sport 23.10.2005 17:51
Bað um að dómur sinn yrði þyngdur Menn ganga misjafnlega langt til að hylla íþróttastjörnur sem þeir hafa í uppáhaldi. Sennilega hafa fáir gengið jafn langt og Eric James Torpy sem var fundinn sekur um morð. Sport 23.10.2005 17:51
Jordan viðurkennir mistök Körfuboltagoðsögnin Michael Jordan viðurkennir í viðtali við þáttinn "60 Minutes" á CBS sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum, að hann hafi gengið of langt í fjárhættuspilum á tíunda áratugnum, en segir að hann hafi náð að hætta að spila þegar honum þótti hann fara yfir strikið. Sport 23.10.2005 17:50