Fótbolti
57 58 59 60 61 62 63 64 65 … 334 ›
Á metið bæði sem leikmaður og þjálfari Lærisveinar Xabi Alonso í Bayer Leverkusen hafa heldur betur komið á óvart á þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Liðið hefur nú jafnað árangur Bayern München frá 2015 þegar Alonso var leikmaður liðsins. Fótbolti 13.11.2023 23:30
Kristianstad búið að fylla skarð Elísabetar Sænska knattspyrnufélagið Kristianstad hefur tilkynnt hvernig það mun fylla skarð Elísabetar Gunnarsdóttur sem hefur þjálfað liðið síðan 2009. Félagið hefur ráðið tvo þjálfara í stöðuna sem Elísabet var í. Fótbolti 13.11.2023 23:01
Man Utd án dönsku landsliðsmannanna næstu vikurnar Þeir Christian Eriksen og Rasmus Højlund verða að öllum líkindum ekki með Manchester United í næstu leikjum félagsins. Enski boltinn 13.11.2023 22:15
„Höfum unnið hörðum höndum að þessu lengi og það þarf að fagna því“ „Mjög góð, mikill léttir að við náðum að sigla þessu heim. Blendnar tilfinningar, búnir að vera erfiðir dagar,“ sagði Ingibjörg Sigurðardóttir, Noregsmeistari í knattspyrnu, og Grindvíkingur í húð og hár í viðtali við Stöð 2 og Vísi. Fótbolti 13.11.2023 20:46
Vallarstjórinn vill blöndu af gervi- og alvöru grasi Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar segist vel geta haldið vellinum leikfærum tíu mánuði á ári, en til þess þurfi hann réttan aðbúnað. Fótbolti 13.11.2023 20:00
Stjarnan riftir og Haraldur án félags Markvörðurinn Haraldur Björnsson er samningslaus eftir að samningi hans við Stjörnuna var rift. Íslenski boltinn 13.11.2023 19:15
Jakobína í Breiðablik Jakobína Hjörvarsdóttir er gengin í raðir Breiðabliks og mun spila með félaginu í Bestu deild kvenna á næstu leiktíð. Hún skrifar undir þriggja ára samning. Íslenski boltinn 13.11.2023 18:31
Gísli Laxdal skrifar undir þriggja ára samning á Hlíðarenda Knattspyrnudeild Vals staðfesti í dag að félagið hefði samið við vængmanninn Gísla Laxdal Unnarsson til þriggja ára. Hann kemur frá uppeldisfélagi sínu ÍA. Íslenski boltinn 13.11.2023 17:45
Kýs að vinna 7-0 en sættir sig við jafntefli í dag „Þetta var góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina og skemmtilegur leikur sem bæði lið vildu vinna,“ sagði Pep Guardiola, þjálfari Englandsmeistara Manchester City, eftir ótrúlegt 4-4 jafntefli sinna manna við Chelsea á Brúnni í Lundúnum. Enski boltinn 12.11.2023 22:15
Inter á toppinn á Ítalíu Inter er komið á topp Serie A, ítölsku úrvalsdeildina í knattspyrnu, þökk sé 2-0 sigri á Frosinone í síðasta leik dagsins. Fótbolti 12.11.2023 21:46
Líkar illa við nær alla dómara Englands Roberto De Zerbi, þjálfari Brighton & Hove Albion, var allt annað en sáttur þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir 1-1 jafntefli sinna manna gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu fyrr í dag. Sagði þjálfarinn að honum væri illa við 80 prósent allra dómara á Englandi. Enski boltinn 12.11.2023 21:30
Skytturnar komu til baka gegn Refunum Arsenal kom til baka eftir að lenda 2-0 undir gegn Leicester City í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu á Englandi. Englandsmeistarar Chelsea unnu Everton örugglega 3-0 og Manchester United vann lið Dagnýjar Brynjarsdóttir, West Ham United, 5-0. Enski boltinn 12.11.2023 21:01
Glódís Perla áfram á toppnum í Þýskalandi Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern München eru áfram á toppnum í þýsku úrvalsdeildinni eftir 2-0 sigur á Duisburg í dag. Fótbolti 12.11.2023 20:30
Markalaust í Róm Lazio og Roma gerðu markalaust jafntefli í borgarslagnum um Róm í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Fótbolti 12.11.2023 16:30
Markasúpa á Brúnni Englandsmeistarar Manchester City gerðu 4-4 jafntefli við Chelsea í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 12.11.2023 16:01
Sjálfsmark Loga gaf Brynjari Inga og félögum þrjú stig Logi Tómasson varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í 0-1 tapi Strømsgodset gegn HamKam í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 12.11.2023 18:05
Lewandowski sá um endurkomu Börsunga Barcelona vann Alaves 2-1 í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í dag. Gestirnir í Alaves leiddu í hálfleik en markamaskínan Robert Lewandowski skoraði tvívegis í síðari hálfleik. Hann hafði ekki skorað í sex leikjum í röð. Fótbolti 12.11.2023 17:30
Jón Dagur lagði upp í grátlegu tapi Jón Dagur Þorsteinsson kom inn af bekknum hjá OH Leuven og lagði upp það sem virtist jöfnunarmark liðsins gegn Genk á útivelli í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, lokatölur 3-1. Þá eru Sverrir Ingi Ingason og félagar í Midtjylland í harðri titilbaráttu í Danmörku. Fótbolti 12.11.2023 17:21
Malmö sænskur meistari á kostnað Íslendingaliðs Elfsborg Malmö er Svíþjóðarmeistari í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Íslendingaliði Elfsborg í hreinum úrslitaleik í dag. Fótbolti 12.11.2023 17:15
Aston Villa í Meistaradeildarbaráttu en Brighton fatast flugið Aston Villa vann 3-1 sigur á Fulham í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Sigurinn þýðir að Villa er komið í hörku baráttu um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Slakt gengi Brighton & Hove Albion heldur áfram og þá unnu Hamrarnir í West Ham United góðan sigur. Enski boltinn 12.11.2023 16:20
Salah í stuði þegar Liverpool lyfti sér upp í annað sætið Liverpool er komið í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir öruggan sigur á heimavelli gegn Brentford. Mo Salah var á skotskónum fyrir Liverpool í dag. Enski boltinn 12.11.2023 13:30
Fyrrum landsliðsmaður Gana lést eftir að hafa hnigið niður í leik Fyrrum landsliðsmaður Gana í knattspyrnu lést á sjúkrahúsi í Albaníu í gær eftir að hafa fengið hjartaáfall í miðjum leik með Egnatia-Rrogozhine. Fótbolti 12.11.2023 14:01
Unnu leikinn en misstu tvo leikmenn í meiðsli Manchester United kom sér aftur á sigurbraut þegar liðið lagði Luton að velli 1-0 í 12. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Victor Lindelöf skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleik. Enski boltinn 11.11.2023 14:30
Jóhann Berg í tapliði þegar Arsenal jafnaði City að stigum Lið Arsenal komst aftur á sigurbraut í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með 3-1 sigri á Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum hans í Burnley í dag. Enski boltinn 11.11.2023 14:30
Marki yfir allan leikinn en misstu forystuna í uppbótartíma Laskaðir lærisveinar Ange Postecoglou hjá Tottenham fengu tvö mörk á sig í uppbótartíma eftir að hafa verið marki yfir í nítíu mínútur, lokatölur urðu 2-1 sigur Wolves og Tottenham mistókst að endurheima toppsæti deildarinnar. Enski boltinn 11.11.2023 12:03
Daníel Leó á skotskónum þökk sé Kristali Mána Fjöldi íslenskra knattspyrnumanna var á ferð og flugi í Evrópu í kvöld. Íslendingalið Sönderjyske stefnir á dönsku úrvalsdeildina. Þá virðist Rúnar Þór Sigurgeirsson vera í góðum málum hjá Willem II í Hollandi. Fótbolti 10.11.2023 23:05
Karólína Lea lagði upp í jafntefli Bayer Leverkusen gerði 2-2 jafntefli við Eintracht Frankfurt í þýsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lagði upp fyrra mark Leverkusen. Fótbolti 10.11.2023 19:46
Önnur breyting á landsliðshóp Íslands: Mikael inn fyrir Mikael Mikael Egill Ellertsson, leikmaður Venezia í Serie B á Ítalíu, hefur verið kallaður inn í A-landsliðshóp Íslands fyrir leikina gegn Slóvakíu og Portúgal þar sem Mikael Neville Anderson hefur þurft að draga sig úr hópnum. Fótbolti 10.11.2023 19:00
Bræður munu berjast í Malmö: „Vona að þeir standi sig vel“ Það er sannkallaður úrslitaleikur í Allsvenska, sænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu, á sunnudag. Toppliðin Elfsborg og Malmö mætast í leik sem sker úr um hvort félagið verður meistari. Það gæti farið svo að bræður muni berjast í leiknum og var þriðji bróðurinn spurður út í hvorn þeirra hann vildi sjá lyfta meistaratitlinum. Fótbolti 10.11.2023 17:46
Segir aðeins tímaspursmál hvenær kona tekur við karlaliði Sarina Wiegman, þjálfari enska kvennalandsliðsins í fótbolta, segir aðeins tímaspursmál hvenær kona tekur við atvinnumannaliði í karlaboltanum. Fótbolti 9.11.2023 16:45