Keppni stofnuð til að réttlæta „heiðarlega dagdrykkju“ haldin í þúsundasta sinn Spurningakeppnin Drekktu betur fór fram í þúsundasta skiptið í kvöld. Keppnin sem var stofnuð til að réttlæta „heiðarlega dagdrykkju“ hefur verið haldin nánast vikulega í tæp tuttugu ár. Þúsundustu sigurvegararnir voru tengdafeðgarnir Árni og Magnús. 13.10.2023 21:38
„Líklega mjög miklir fólksflutningar“ til Venesúela framundan Útlendingastofnun er heimilt að synja fólki frá Venesúela um alþjóðlega vernd hér á landi samkvæmt nýjum úrskurðum kærunefndar útlendingamála. Með þessu hefur nefndin snúið við fyrri niðurstöðu um að ríkisborgurum frá Venesúela skuli veitt sérstök viðbótarvernd. 29.9.2023 21:54
Allt stefndi í björgun en eftir bátsbilun var háhyrningurinn aflífaður Aflífa þurfti háhyrning eftir að björgunaraðgerðir í Gilsfirði, sem framan af gengu vonum framar, mistókust þegar bátur sem átti að toga dýrið út bilaði. Sérgreinadýralæknir hjá MAST segir að ekki hafi verið hægt að leggja meira á dýrið í ljósi þess að það hafði beðið í fimm daga. 29.9.2023 12:08
Umræðu um alvarleg samkeppnisbrot snarlega stýrt í aðrar áttir Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, er málshefjandi í sérstakri umræðu um samkeppniseftirlit á Alþingi en til andsvara er Lilja Dögg Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra. 28.9.2023 14:45
Það taki enga stund að hola menningarstofnanir að innan sem tók áratugi að byggja Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari, tekur upp hanskann fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands sem stendur í kjarabaráttu. Hann segir að það yrði hræðilegt ef hljómsveitin færi í verkfall sem nú stefnir í. Víkingur biðlar til stjórnvalda að meta hljóðfæraleikarana að verðleikum. Það taki áratugi að byggja upp menningarstofnanir en stuttan tíma að hola þær að innan. 27.9.2023 13:19
Skorar á ríkisstjórnina að takast á við hinn raunverulega „brennuvarg“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, gerði pistil Vilhjálms Birgissonar formann Starfsgreinasambandsins að umtalsefni í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. 26.9.2023 15:34
Segir fráleitt að ríkislögreglustjóri hafi reynt að hafa áhrif á dómara Í morgun steig fram Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra Snæs Birgisson annars tveggja sakborninga í hinu svokallaða hryðjuverkamáli, og sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann sakar Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjón alþjóðasviðs, um að nota hættustig hryðjuverka til að þrýsta á dómara í málinu. Hann sagði brýnasta verkefnið að endurskoða frá grunni starfsemi ríkislögreglustjóra. 25.9.2023 14:40
Munaði um hvern mann í björgunaraðgerðum gærkvöldsins Það gekk hratt og örugglega að koma rannsóknarskipinu Bjarna Sæmundssyni á flot eftir að það strandaði á Sveinseyri í gærkvöldi. Flytja þurfti átta skipverja af tuttugu frá borði og í fjöldahjálparstöð á Tálknafirði. 22.9.2023 13:16
Jón segir upplýsingaóreiðu að finna í frumvarpi Andrésar Inga Mikill hiti var í þingsal nú fyrir stundu þegar Andrés Ingi Jónsson Pírötum flutti frumvarp þar sem mælt er fyrir um bann við hvalveiðum. Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokki sagði frumvarpið tóma tjöru en það ætti ekki að þurfa að koma á óvart þegar litið er til þess hver var flutningsmaður. 21.9.2023 17:11
Minna vesen í öryggisleitinni með nýjum búnaði Ráðist verður í fjárfestingu á nýjum og byltingarkenndum búnaði fyrir öryggisleit Keflavíkurflugvallar sem bæði mun auka öryggi og þægindi farþega því með tilkomu búnaðarins munu farþegar ekki lengur þurfa að taka vökva og tölvur upp úr töskum sínum í öryggisleitinni. Miðað er við uppsetningu gegnumlýsisbúnaðarins um mitt ár 2025 en fjárfestingin hljóðar upp á einn og hálfan milljarð. 21.9.2023 14:15