Lífið

Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látinn

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Ashton á frumsýningu Beverly Hills Cop: Alex F myndarinnar sem kom út í ár á Netflix. Þar rifjaði hann upp gamla takta.
Ashton á frumsýningu Beverly Hills Cop: Alex F myndarinnar sem kom út í ár á Netflix. Þar rifjaði hann upp gamla takta. getty

Bandaríski leikarinn John Ashton er látinn. Asthon var hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem lögreglumaðurinn John Taggart í Beverly Hills Cop-kvikmyndunum. 

Myndirnar komu út árin 1984 og 1987 með Eddie Murphy og Judge Reinhold sömuleiðis í aðalhlutverkum. Ashton rifjaði upp gamla takta í myndinni Beverly Hills Cop: Axel F sem kom út í ár, en þá sem lögreglustjóri.

Andlátið staðfestir umboðsmaður Ashton við Variety. Ashton hafi andast á heimili sínu í Fort Collins í Colorado á fimmtudag, 76 ára að aldri. 

Leikaraferill Ashton spannaði fimmtíu ár. Meðal annarra kvikmynda sem Ashton lék í má nefna  An Eye for an Eye og Borderline. Þá átti hann gestaframkomur í fjölda sjónvarpsþátta. Asthon lætur eftir sig tvö uppkomin börn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×