Viðskipti innlent

Fríar skólamáltíðir séu skamm­góður vermir

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Verð í mötuneytum lækkaði um 35,9% milli mánaða og er verðlækunnin að miklu leyti vegna þess að máltíðir í grunnskólum eru nú gjaldfrjálsar.
Verð í mötuneytum lækkaði um 35,9% milli mánaða og er verðlækunnin að miklu leyti vegna þess að máltíðir í grunnskólum eru nú gjaldfrjálsar. vísir/Vilhelm

Verðbólga hefur ekki mælst minni í tæp þrjú ár og hjaðnar á milli mánaða. Verðlækkun í mötuneytum vegna gjaldfrjálsra máltíða í grunnskólum hefur töluverð áhrif. Hagfræðingur hjá Viðskiptaráði telur þau eiga eftir að ganga til baka og raunar skila sér í aukinni verðbólgu.

Verðbólga mælist nú 5,4 prósent og hefur ekki verið minni síðan í desember 2021. Samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar lækkar vísitala neysluverð um 0,24 prósentustig milli mánaða.

Af einstökum liðum í mælingunni er mesta breytingin á verði í mötuneytum sem lækkar um tæp 36 prósent milli mánaða. Þessi lækkun er að mestu til komin vegna þess að máltíðir í grunnskólum eru nú gjaldfrjálsar.

Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði, lýsir þessari lækkun sem tæknilegu atriði.

„Það sem við teljum að muni gerast er að verðbólgan færist frá mötuneytisliðnum í vísitölunni og yfir í aðra liði og það er vegna þess að ríkið greiðir nú þennan kostnað og þá hækkar verðbólga í öðrum liðum á móti. Þetta er einkiptisaðgerð þannig hún hefur áhrif núna og svo birtast þensluáhrifin á næstu mánuðum,“ segir Gunar.

Háir vextir mildi áhrifin

Ríkið greiðir 75 prósent af kostnaðinum við skólamáltíðir og sveitarfélög rest en framlög ríkisins á haustönn barna í ár nema ríflega 1,7 milljarði króna. Gunnar segir þetta til þess fallið að auka hallarekstur ríkisins og þá hafi heimilin nú að óbreyttu meira á milli handanna. Hvar áhrif þess birtist fari eftir því sem fólk kýs að gera við peninginn.

Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs.

„Það er líklegt að þau noti þann pening í aukna neyslu en það sem gæti vissulega spilað á móti eru háir stýrivextir. Þannig það gæti verið að fólk leggi þennan pening til hliðar og vissulega ef vextir á lánum þessara heimila eru að losna þá ættu þessir peningar að fara í lánin þannig að þensuáhrifin verða kannski ekki eins mikil vegna þeirra háu vaxta sem eru nú.“

Gunnar segir verðbólgutölurnar í takti við væntingar og jafnvel aðeins skárri. Óvissuþættir séu þó nokkrir.

„Annað tæknilegt atriði sem við eigum eftir að sjá hvernig hefur áhrif á verðbólgu er útfærsla á fyrirhugaðri breytingu á skattlagninu á rekstri ökutækja næstu áramót. Þar telja greiningardeildir bankanna að það muni hafa veruleg áhrif til lækkunar á verðbólgu þegar þessi breyting tekur gildi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×