Viðskipti innlent

Veru­lega minni verð­bólga

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Verðbólgan lækkar um 0,6 prósentustig. 
Verðbólgan lækkar um 0,6 prósentustig.  Vísir/Vilhelm

Verðbólga mælist nú 5,4 prósent og hefur minnkað um 0,6 prósentustig frá síðasta mánuði. Vísitala neysluverðs miðað við verðlag í september 2024 lækkar um 0,24 prósent frá fyrri mánuði.

Þetta kemur fram í tilkynningu Hagstofunnar. Þar kemur einnig fram að vísitala neysluverðs án húsnæðis hafi lækkað um 0,55 prósentustig frá því í ágúst 2024 og mælist nú 2,8 prósent.

Verð á fötum og skóm hækkaði um 5,0 prósent og eru áhrif á vísitöluna 0,18 prósent. Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,7 prósent og eru áhrifin á vísitöluna 0,14 prósent. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 16,5 prósent og verð í mötuneytum lækkaði um 35,9 prósent. Lækkun í mötuneytum er að miklu leyti vegna þess að máltíðir í grunnskólum eru nú gjaldfrjálsar.

Skýring Seðlabankans á hvað verðbólga er:

Verðbólga er skilgreind sem viðvarandi hækkun almenns verðlags og er mæld sem tólf mánaða breyting vísitölu neysluverðs. Sú vísitala mælir meðalverð á vörum og þjónustu sem heimili á Íslandi kaupa í hverjum mánuði. Verðbólga felur í sér að verðgildi og kaupmáttur peninga minnkar, þ.e.a.s. minna magn vöru og þjónustu fæst fyrir hverja krónu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×