Lífið

Þetta eru einkenni fórnarlamba mansals á ferðalagi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Starfsfólk Isavia fær kennslu í því að sigta út fórnarlömb mansals.
Starfsfólk Isavia fær kennslu í því að sigta út fórnarlömb mansals.

Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur hjá lögreglunni á Suðurnesjum segir að mansal sé mun algengara en fólk grunar og það sé mikilvægt að starfsfólk Leifsstöðvar taki eftir hegðun sem gefi til kynna ef eitthvað óeðlilegt sé í gangi. Rætt var við Öldu Hrönn í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

Isavia hefur gefið út kennslumyndband sem ætlað er starfsfólki flugstöðvarinnar, sem er í beinni snertingu við farþega, í að taka eftir ef um mansal er að ræða.

Árlega eru milljónir manna, aðallega ungar konur og börn, seld mansali og neydd í kynlífsþrælkun, vændi eða nauðungarvinnu.

„Í raun og veru er þetta grunnkennslumyndband um einkenni mansals og eftir hverju eigi að horfa. Hver eru helstu einkenni og af hverju það skiptir máli að við séum að horfa eftir því,“ segir Alda Hrönn í samtali við Sindra Sindrason.

Þekktasta birtingarmyndin er innflutningur á ungum stúlkum frá Austur-Evrópu til ríkari landa vestar í álfunni.

Rætt var við Öldu Hrönn í Leifsstöð.

Oftar en ekki eru þessar stúlkur lokkaðar frá heimalandi sínu um loforð um starf og betra líf en eru svo hnepptar kynlífsánauð og þvingaðar út í vændi.

Í þættinum var farið yfir einkenni fólks sem fer í gegnum flugstöðina og er mögulega í fylgd með aðilum sem hefur hneppt það í mansal. Þessi einkenni eru til að mynda klæðaburður sem sker sig úr miðað við samferðamenn, fólkið tjáir sig ekki og lætur aðra um að tala fyrir sig og fleiri einkenni sem má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.